mánudagur, ágúst 14, 2006

Heill mánuður af aksjón!

Svona í ljósi þess að mér var ókleyft að blogga í heilan mánuð vegna bilunar í bloggumsjónarkerfinu mínu hef ég ákveðið að skrifa hér ágrip yfir atburði þessa annars merkilega mánaðar.

Frá byrjun júlí hef ég fylgst vikulega með, eins og ég kallaði hann alltaf "wannabe Magna" í Rock Star Supernova á SkjáEinum. Hann hefur komið mér ánægjulega á óvart og svei mér ef ég er ekki bara farin að halda svakalega mikið með honum. Er ekki frá því að hann sé alveg í topp 3 þarna í þessum hóp - og believe me - ég er ekki hlutdræg!

Það er gaman að segja frá því að við Júlli létum verða af því að skrá okkur í golfklúbb í byrjun júlí. Klúbburinn er í Mosfellsdal og kallast Golfklúbbur Bakkakots (GOB). Við erum alveg búin að golfa villt og galið - aðallega galið samt - og ég held að Júlli sé farinn að dreyma sveifluna nánast á hverri nóttu.

21. - 24. júlí skrapp ég til Noregs ásamt mínum heittelskaða að heimsækja yfirmanninn hans. Þetta var samt engin vinnuferð heldur bauð hann okkur í eyjakofann sinn í miðjum Oslófirðinum þar sem við nutum þess að gera ekkert í nokkra daga. Veðrið lék við hvern sinn fingur, það var sannkallað Spánarveður - svo gott meira að segja að við gátum svamlað í sjónum án þess að fá kuldabólur! Æðislegt alveg! Komum að sjálfsögðu heim með brúnan og sællegan bjórvömb.

Fórum í mega fjölskylduútilegu um verslunarmannahelgina og gerðum ekkert nema elta sólina og jú - spila golf! :) Rúntuðum alla helgina og gistum aldrei á sama stað - sem borgaði sig því við fengum heldur betur frábært verður - sérstaklega á mánudeginum í Höfn í Hornafirði. Verð samt að viðurkenna að það er soldið mikið að keyra hringinn á fjórum dögum!

En þetta var sem sagt líf mitt í mjöööög grófum dráttum þennan mánuð sem ég bloggaði ekkert og svo skal ég reyna að vera duglegri!

2 Comments:

Þann 14/8/06 13:36, sagði Blogger Guðrún:

Iss það eru bara einhverjir sveitalubbar í Noregi!! Hvenær komið þið til Sverige?? ;) 'blikk blikk'

Hlakka til að sjá þig skvís þegar ég kem á klakann, tökum lunch og eitthvað fleira skemmtó!! Svo auðvitað eitthvað rosa tjútt á reunioninu!!

Puss och kram

 

Þann 14/8/06 17:12, sagði Blogger Ragnhildur Ágústsdóttir:

já ekki spurning - það er sko heldur betur kominn tími til! :)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home