Bölvans gripdeild!
Haldiði að það hafi ekki verið brotist inn í bílinn hjá okkur á dögunum og tölvunni minni stolið! Ég sem passa mig alltaf voða vel að skilja aldrei neitt verðmætt eftir í bílnum þurfti akkúrat að gleyma tölvunni þennan eina dag og þá AUÐVITAÐ var einhver óprúttinn náungi sem mölbraut rúðuna á bílnum og hirti mína ofurverðmætu tölvu! Þó það hefði verið voða pirrandi og slæmt þá var það ekki verst að tölvunni minni hefði verið stolið heldur að öll gögnin mín væru horfin! Grmf...! Svo þurftum við í þokkabót að borga sjálf fyrir að brotist hefði verið inn í bílinn vegna þess að sjálfsábyrgðin "coveraði" skaðann! Life's a bitch!

4 Comments:
Já haha... gleymdi - ætlaði að segja í blogginu að ég hefði rekist í dag á þetta sérlega skemmtilega orð "gripdeild" sem þýðir einmitt rán/þjófnaður/stuldur.
ég var einmitt að fara að kommenta á þetta bévítans orð hahahha.
Sá í Flórída færslunni að þið ætlið að fara tvisvar á golfvöll og þá vitið hvar ég verð á meðan. Á ströndinni að ná mér í tan ársins með slúðurblöðin allsráðandi.

Nú, á semsagt ekki að koma með á golfvöllinn??? Ég sem hef einmitt heyrt hvað þú ert búin að vera dugleg á golfvellinum! MUHAHAHAH! :D
Sendu inn athugasemd
<< Home