föstudagur, júní 30, 2006

Útileguveikin mikla

Ég hef alltaf verið sérlega mikið gefin fyrir útilegur. Ég bókstaflega ELSKA að vakna upp í tjaldi, nudda stírurnar úr augunum, renna frá tjaldhurðinni og blikka framan í morgunsólina sem skín á döggina sem enn eimir eftir af á grasinu. Áður en ég gerist of ljóðræn þá semsagt bauðst mér og mínum að fara í útilegu þessa helgina og ég hoppaði hæð mína af gleði enda hef ég beðið lengi eftir að komast í eina slíka. Nema hvað, manneskjan sem haldin hefur verið útileguveiki síðan fyrsti sumargeisli sólarinnar braut sér leið í gegnum vorið, varð skyndilega uppfull af kvefi og leiðindum og kemst ekki með! Sannkölluð ólukka! En þið hin, þið skemmtið ykkur vel og sýnið mér myndir!

2 Comments:

Þann 30/6/06 23:08, sagði Blogger GunniGunn:

það má nú hugga sig við að horfa á HM í staðinn :)

 

Þann 2/7/06 23:58, sagði Anonymous ivar orn:

þú getur séð myndir á heimasíðunni minni.

 

Sendu inn athugasemd

<< Home