miðvikudagur, júní 21, 2006

Kjaramál

Heyrði í útvarpinu í dag að launahækkanir hefðu ekki verið svona miklar á einu ári síðan sautjánhundruð og súrkál. Kjarabaráttan virðist því hafa gengið nokkuð vel. Hins vegar hefur efnahagsástandið ekki verið sem skildi og hin mikla verðbólga sem hefur hrjáð landann undanfarna mánuði hefur því að miklu leyti étið upp mestan hluta þessara launahækkana. M.v. verðbólgu er kjarasabótin nú aðeins rétt rúmlega 2% sem er ekki neitt m.v. að samningarnir ná nokkur misseri fram í tímann og verðbólguvæntingar eru ekki svo ýkja góðar!

Svo ég fór allt í einu að spá - hvernig er það fyrir okkur hin sem ekki vinnum hjá ríkinu eða sveitarfélögunum og semjum um laun beint við atvinnurekandann án milligöngu kjaranefndar eða annarra sem koma að þessu máli. Segjum sem svo að í árlegu launaviðtali sé krafist 5% launahækkunar. Eigum við þá að krefjast þessara 5% hækkunar + hækkun sem nemur verðbólgu??? Segjum að ástandið sé eins og það er nú, 8% verðbólga. Ef ekki væri beðið um þessa auka launahækkun sem nemur verðbólgunni væri maður í raun að lækka um 3% í launum EFTIR að beðið hefur verið um þessa 5% hækkun sem er auðvitað algjörlega óraunhæft. þannig að þegar svona árar og stjórnvöld og Seðlabankinn missa algjöra stjórn á verðbólgunni á maður þá e.t.v. að biðjia um 15% launahækkun ef maður vill í raun fá 5% hækkun??? Anyways... fór bara að pæla...