Júlli og Jake í Melrose Place


Ég er búin að gera nýja og undursamlega uppgötvun - Melrose Place! Ég var semsagt aldrei með Stöð 2 þegar ég var yngri og ég hef öðlast æskuljómann á ný og hreint út sagt ELSKA Beverly Hills og Melrose Place! Ég er líka nett hrifin af Jake (Grant Show) enda maðurinn óhemju líkur honum Júlla! Og ég er ekki ein um þá skoðun! Gummi Jóh, starfsmaður Símans sem ég er í reglulegu sambandi við útaf vinnunni, sá myndina af okkur á msn og sagði við mig að fyrra bragði: "Strákurinn á msn-myndinni þinni er alveg svakalega líkur Jake í Melrose Place!" :Þ

2 Comments:
Úff.. ég var að lesa yfir þetta blessaða blogg mitt og ég held að ungæðingslegra blogg hafi aldrei verið skrifað! aaahahahahahahaha.... :D
já ég er sammála !!!
er þetta ekkert hallærislegt svona mörgum árum seinna???
sjálf var ég nú húkkt á Beverly Hills og Melrose I gamla daga... tók upp hvern þátt af Beverly :)
gaman að sjá að þú ert enn ung í anda.
ég verð á Íslandi eftir 15 daga... ætluðum við ekki að kíkja á djammið???
Sendu inn athugasemd
<< Home