
Portúgalar unnu glæsilegan sigur á Hollenska landsliðinu rétt í þessu mér til ómældrar ánægju. Ég hafði nú ekkert sérstaklega mikið á móti Hollendingum fyrir þennan leik en nú hef ég sannkallaða óbeit á þeim. Þeir voru ekki bara óheiðarlegir í leiknum þar sem þeir létu sig ítrekað falla eins og keilur í vítateig Portúgala við minnstu snertingu með glæsilegum leikrænum tilburðum heldur voru þeir óhemju grófir líka og eru hugsanlega búnir að valda því að hinn ungi Ronaldo sé meiddur. Og þegar dómarinn stoppaði leikinn í miðri stórsókn Portúgala vegna leikmanns sem lá meiddur á vellinum og leikurinn byrjaði að nýju án þess að Hollendingar létu Portúgala fá boltann ætlaði ég ekki að verða eldri. Óíþróttamannlegasta hegðun sem ég hef séð lengi! Þarna gjörsamlega missti ég allt álit á Hollendingunum og vonaði innilega að þeir myndu tapa leiknum - sem þeir og gerðu. En stórbrotinn og yfirmáta dramatískur leikur svona allt í allt og klárlega sá skemmtilegasti á HM fram að þessu.
7 Comments:
Ég sá þennan leik með allt öðrum augum. Mér fannst einmitt Portúgalir ákaflega grófir og komast upp með óheiðarlegan leik. Figo átti tvímælalaust að fá rauða spjaldið fyrir að skalla Mark van Bommel. Ég viðurkenni fúslega að það var ekki drengilega gert af Hollendingum að sparka ekki knettinum aftur til Portúgala en það réttlætir ekki mjög svo grófa tæklingu og hegðun Deco á Heitinga skömmu síðar og í kjölfarið fylgdi önnur gróf tækling aftanfrá hjá Nuno Valente á Robin van Persie. Til að kóróna allt fékk svo ágætur og heiðarlegur varnarmaður Hollendinga sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir algjörlega óviljandi samstuð við Figo og eins og sönnum suðurevrópskum leikmanni sæmir þá sýndi Figo flotta leikræna takta. Svona getur fótboltinn nú verið skemmtilegur og hægt að sjá hann frá mörgum hliðum eftir því með hvaða liði maður heldur. Ég vil þó geta þess að þetta er algjörlega hlutlaust mat hjá mér. En bara svona rétt í lokin þá getum við öll verið sammála um það að þetta var frábær leikur.
:D ...hehe já ég er búin að heyra frá fleirum að þeir hafi séð hann eins og þú. En jæja, svona er þetta. Mér fannst nú sóknarmaður Hollendinga (þessi rauðhærði) ásamt Van Persie vera helvíti duglegir að kasta sér niður í vítateig Portúgala. En Figo gekk of langt með "skallann" en mér fannst alveg nóg að hann fengi gula - mér fannst þetta vera sáralítil snerting og það fór mjög í taugarnar á mér að leikmaðurinn sem var "skallaður" skyldi grípa um andlitið eftir nokkrar sekúndur og henda sér niður. En Gunni, sammála um að vera ósammála? ;)
ég segi bara vá hvað þú ert lituð í þessum skrifum, augljóslega mikill aðdáandi portúgala :) Alveg sama hvort "skallinn" hafi verið léttvægt högg eður ei, þá stendur skýrt í knattspyrnulögunum að þetta eigi að vera rautt spjald. Allir sennilega sammála um það nema aðdáendur Portúgala og Valentin Ivanov :) Allt öðru máli gegnir að sparka knetti aftur til mótherja, það er óskráð regla og hefur eingöngu með drengskap að gera. Fyrir mitt leiti finnst mér mun alvarlegri glæpur/brot að skalla mótherja af ásetningi en að sparka boltanum aftur til mótherja. Til að komast áfram í svona "stríðsleik" þarf ákveðna ófyrirleitni og á því sviði höfðu Portúgalir yfirhöndina að þessu sinni. Portúgalir hafa líka eitt annað framyfir Hollendinga, þeir eru mun betri í leiklistinni :) Varð bara að fá að tjá mig, Obrigado. :)
Er svo innilega ekki sammála þér Gunni,
"Til að kóróna allt fékk svo ágætur og heiðarlegur varnarmaður Hollendinga sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir algjörlega óviljandi samstuð við Figo"
Þessi ágæti "heiðarlegi" varnamaður hollendinga gerði það að verkum að Ronaldo þurfti að fara af leikvelli meiddur eftir tæklingu sem augljóslega stofnaði leikmanninum í hættu og samkvæmt knattspyrnureglunum stendur skírt að fyrir svoleiðis brot eigi að vísa mönnum af velli!!!
Fyrir utan þetta þá fer þessi varnarmaður með olbogan framan í Figo og á sér stað snerting og því ekki bara um leikaraskap að ræða hjá honum Figo, þó ég geti ekki neitað því að hann hafi kannski kryddað þetta pínu en klárlega átti þessi leikmaður skilið að fara útaf þó fyrr hefði verið!!!
Svo ég kem að næst máli þ.e.a.s "skallinn" ógurlegi, fyrir mitt leiti kallast þetta ekki skalli frekar að hann sé að ýta hausnum að Bommel sem haggast ekki fyrr en hann fattaði hvernig þetta lítur út fyrir myndavélarnar og lætur sig því detta. Fyrir mér var þetta ekki Rautt spjald heldur gult svo átti Bommel einnig að fá gult spjald fyrir leikaraskap!
En hefði dómarinn gefið honum rautt hefði það ekki komið mér neitt svakalega á óvart þar sem snertingin á sér stað.
Og eins og ragga kom fram á þá eru Hollendingar nú ekkert skárri að láta sig detta eins og dauðir mávar þar má nú nefna þennan rauðhærða center, Robben, van pirse og síðast en ekki síst Bommel sem er einstaklega óheiðarlegur leikmaður!!!
Ég hef alltf haft sterkar taugar til Holllendinga því jú þeir spila oft á tíðum frábæran fótbolta en þessi leikur gerði það að verkum að ég missti allt álit á þeim.
Þessir holllensku leikmenn virðast upp til hópa menn sem gera ALLT til að ná markmiði sínu og haf aþeir líka sýnt það með félagsliðum sínum að þeir eiga erfitt með sig og þar ber að nefna Van pirse sem er alltaf að missa sig of fá rauð spjöld, Robben sem er einn af óvinsælari mönnum á englandi vegna leikaraskap og hesturinn í man utd van nistelroy sem virðist eitthvað vera í vandræðum þessa dagana vegna þess hann hefur verið á bekknum bæði í landsliðinu og í félagsliðinu og er sú bekkjarseta ekki tilkominn vegna framistöðu á vellinum.
Varð bara að svara þér Gunni því held að þú hafir nú ekki alveg verið að horfa á leikinn hlutlaust.
hahah.. það eru engin smá skoðanaskipti! :D
This comment has been removed by a blog administrator.
já ég ætti kannski að sækja um hollenskan ríkisborgararétt :) svo ótrúlega skemmtilegt að vera ósammála. alveg ómetanlegt :) Ágætis rök hjá þér Júlli þú mátt eiga það en ég sit ennþá við minn keip :)
Sendu inn athugasemd
<< Home